Fyrstu æfingar vorannar

Fyrstu æfingar vorannar verða í næstu viku en vorönninn hefst á krakkaæfingum þriðjudaginn 10. janúar næstkomandi og fullorðinsæfingar fylgja svo í kjölfarið daginn eftir, miðvikudaginn 11. janúar. Byrjendur í öllum hópum geta mætt samkvæmt stundatöflu og prófað 2-3 tíma. Engar breytingar verða gerðar á samsetningu krakkahópanna og æfingatímar allra hópa eru þeir sömu og áður (sjá stundatöflu).

 

 

Posted in Uncategorized | Comments Off on Fyrstu æfingar vorannar

Samskip styður barna- og unglingastarf á Akureyri

Landflutningar – Samskip hafa ákveðið að styðja dyggilega við bakið á barna og unglingastarfi hér á Akureyri. Landflutningar – Samskip gefa allt andvirði jólapakkasendinga sinna til og frá Akureyri í sérstakan sjóð sem ÍBA mun úthluta úr eftir viðurkenndu úthlutunarkerfi. Leggjum okkar lóð á vogarskálarnar og styðjum þetta frábæra framtak.

Flytjum jólapakkana með Landflutningum því það rennur allt í okkar góða barna og unglingastarf.

 

Posted in Uncategorized | Comments Off on Samskip styður barna- og unglingastarf á Akureyri

Gráðupróf barnahópa í desember

Nú eru gráðupróf í barnahópum framundan og verða þau haldin sem hér segir:

  • Gráðupróf hjá Mið er fimmtudaginn 15. desember frá 16:00-17:15.
  • Gráðupróf hjá Yngri er fimmtudaginn 15. desember frá 17:15-18:30.
  • Athugið að Eldri eru í fríi fimmtudaginn 15. desember.
  • Gráðupróf hjá Eldri er þriðjudaginn 20. desember frá 17:00-18:30.
  • Athugið að Yngri og Mið eru í fríi þriðjudaginn 20. desember.
  • Beltaafhending er á æfingatíma fimmtudaginn 22. desember.

Það eru vinsamleg tilmæli frá stjórn félagsins að gengið sé frá æfingagjöldum eða samið um greiðslur áður en að gráðuprófi kemur.

Posted in Uncategorized | Comments Off on Gráðupróf barnahópa í desember

Æfingatímar

Vinsamlega kynnið ykkur stundatöfluna fyrir haustönnina. Það var villa í stundatöflunni hjá Yngri og Mið sem búið er að leiðrétta núna og biðjumst við velvirðingar á því ef það hefur valdið ykkur vandræðum.

Posted in Uncategorized | Comments Off on Æfingatímar

Tilmæli frá gjaldkera

Minnum þá sem eiga eftir að greiða æfingagjald frá síðustu önn að ganga frá greiðslu sem fyrst. Einnig minnum við þá sem keyptu peysur og fl. að greiða þær.
Bestu kveðjur Gjaldkeri karatefélags Akureyrar

Posted in Uncategorized | Comments Off on Tilmæli frá gjaldkera

Vetrarstarfið er að hefjast

Æfingar byrja hjá öllum hópun 1. september samkvæmt stundaskrá. Byrjendur geta mætt í 2 tíma til prufu. Allir iðkendur eldri og nýjir vinsamlega skráið ykkur hér á heimasíðunni undir Skráning.

Karate er kennt í 3 hópum

  • Yngri, fædd 05-04
  • Mið, fædd 03-02 og
  • Eldri, fædd 01 og eldri

Börn fædd 97 æfa með fullorðnum á föstudögum og annan hvern laugardag. Að öðru leyti hefur stundaskráin haldist nær óbreytt frá því í fyrra.

Æfingagjöld hafa hækkað lítisháttar og sá má verðskrá hér á síðunni.

Posted in Uncategorized | Comments Off on Vetrarstarfið er að hefjast

Æfingar í júní

Fullorðinsæfingar eru á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18:30-20:00.

Krakkaæfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:00-18:00.

Allar æfingar eru í Laugargötu (ekki í Oddeyrarskóla).

Þetta gildir út júní og annað verður tilkynnt síðar.

Posted in Uncategorized | Comments Off on Æfingar í júní

Beltapróf og breyttir æfingatímar

Þriðjudaginn 24. maí verða beltapróf hjá 5-7 ára og 8-10 ára. 8-10 ára mæta kl. 16:00 og 5-7 ára mæta kl. 17:30. 11-14 ára mæta á æfingu kl. 18:30.

Fimmtudaginn 26. maí er beltapróf hjá 11-14 ára sem byrjar kl. 17:30. Það er ekki æfing hjá 5-7 ára og 8-10 ára.

Þriðjudaginn 31. maí er belta- og skírteinaafhending, á æfingatíma, og lýkur þar með vetrarstarfi félagsins. Foreldrar eru hvattir til að koma með og vera með á æfingunni.

Sunnudaginn 29. maí verða beltapróf fyrir gult og appelsínugult fyrir 15 ára og eldri. Önnur beltapróf verða í júní en dagsetningin kemst á hreint á næstu dögum.

ATH: Allir sem eru að fara í gráðupróf verða að ganga frá greiðslu æfingagjalda fyrir prófið.

Posted in Uncategorized | Comments Off on Beltapróf og breyttir æfingatímar

Aðalfundur Karatefélags Akureyrar

Aðalfundur Karatefélags Akureyrar verður haldinn miðvikudaginn 20. apríl kl. 21:00 að Löngumýri 30.

Posted in Uncategorized | Comments Off on Aðalfundur Karatefélags Akureyrar

Páskafrí í barnahópum

Barnahóparnir eru komnir í páskafrí en æfingar hjá þeim byrja á nýjan leik fimmtudaginn 28. apríl.

Posted in Uncategorized | Comments Off on Páskafrí í barnahópum