Fyrsta videokvöld karatefélags Akureyrar

Laugardagskvöldið 17. Apríl 2010 verður haldið videokvöld á Mongó kaupangi fyrir 18 ára og eldri frá kl. 20.00 – 22.30. Sýndar verða úrvals upptökur og fræðsluefni um karate og tengdu efni. Ef vel tekst til og ánægja ríkir um kvöldið er ætlunin að gera videokvöldin að reglulegri dagskrá s.s. annan hvern mánuð.  Ekkert kostar inn en veitingar verða hver og einn að sjá um sjálfir.  Eftir 22.30 er staðurinn svo opnaður almenningi en þeir sem vilja vera áfram er það frjálst.

Videokvöld fyrir krakkana verður svo haldið mjög fljótlega svo endilega fylgist með á vefinum.

Með von um góða mætingu og góða skapið.

Skemmtinefnd.

This entry was posted in Uncategorized. Bookmark the permalink.